
Fjölmennasta útskrift í sögu Háskólans á Bifröst
Í dag munu 213 nemendur brautskrást frá Háskólanum á Bifröst við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þetta er fjölmennasti hópur útskriftarnema í rúmlega hundrað ára sögu skólastarfs Bifrastar. „Þessi fjölmenni hópur ber vitni um þann mikla vöxt og kraft sem einkennt hefur háskólann á síðustu misserum,“ segir í tilkynningu.