Þarna er Venus NS, skip Brims, komið á miðin. Fjær eru Hoffell SU að draga nótina og Gullborg VE enn fjær. Ljósm. Sigmund av Teigum

Loðnuvertíðin komin á fullt

Loðnuvertíðin er hafin af fullum krafti og hafa skipin fengið ágætis afla síðustu daga. Loðnan gengur nú hratt vestur með suðausturströnd landsins. Hrognafyllingin er núna á bilinu 16 – 18 prósent sem þýðir að heilfrysting fyrir Japansmarkað er hafin. Hrognataka og frysting hefst að jafnaði þegar hrognafyllingin er komin um eða yfir 20%.