
Guðrún Katrín Sveinsdóttir.
Keppa fyrir hönd Óðals í Samvest
Guðrún Katrín Sveinsdóttir nemandi í Grunnskólanum í Borgarnesi og Kristbjörg Ragney Eiríksdóttir í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum báru sigur úr býtum í Söngkeppni Óðals í Borgarbyggð sem fram fór í Hjálmakletti í síðustu viku. Þær munu því keppa fyrir hönd Óðals í Söngkeppni Samvest sem haldin verður í Stykkishólmi í mars. Sú keppni er undankeppni félagsmiðstöðva á Vesturlandi fyrir Söngkeppni Samfés. Átta keppendur komu fram í Hjálmakletti og stóðu sig allir vel og var keppnin því mjög spennandi. Í þriðja sæti varð Bergrós Einarsdóttir nemandi í Grunnskóla Borgarfjarðar.