
Lilja bar sigur úr býtum í formannskjöri hjá Framsókn
38. flokksþing Framsóknarflokksins stendur nú yfir í Reykjavík undir slagorðinu; Vinna, vöxtur, velferð. Þar er ný forysta flokksins kosin. Sigurður Ingi Jóhannsson fráfarandi formaður til tíu ára gaf ekki kost á sér til endurkjörs og kosið var á milli þeirra Ingibjargar Isaksen þingmanns og Lilju Daggar Alfreðsdóttur fv. þingmanns, ráðherra og varaformanns. Úrslit urðu þau að Lilja Dögg bar sigur úr býtum, hlaut hún 352 atkvæði eða 58% atkvæða en Ingibjörg fékk 254 atkvæði eða 42%. Einn seðill var auður.