
Billi stýrimaður og Gabriel á Ólafi Bjarnasyni SH að sýna fallega þorska. Ljósmyndir: af
Mokveiði og bátarnir þurftu að tvílanda
Aflabrögð þeirra báta sem róa frá Snæfellsbæ voru með eindæmum góð í síðustu viku. Fiskverð hefur haldist hátt svo sjómenn ráða sér vart fyrir fögnuði. Netabáturinn Bárður SH hefur komið að landi með um 60 tonna afla eftir daginn og á föstudag tvílandaði báturinn. Einnig hefur netabáturinn Ólafur Bjarnason SH tvílandað og aflinn var yfir 40 tonn síðastliðinn fimmtudag. Á föstudag var aflinn 24 tonn í aðeins fjórar trossur og uppistaða aflans var þorskur af stærri gerðinni. Mokveiði var einnig í dragnót og Hildur SH var með um 40 tonn eftir daginn. Aðrir dragnótarbátar voru með mjög góðan afla. Sama mokið var á línubátum eða allt að 24 tonn eftir eina lögn. Einnig hafa handfærabátar gert góða daga og afli þeirra um þrjú tonn í róðri.