Viðbragðsaðilar í Grundarfirði fóru hring í bænum með tilheyrandi látum og blikkandi ljósum. Bílalestin stöðvaði svo á bílaplaninu við ráðhúsið þar sem Slökkvilið Grundarfjarðar sýndi hvernig menn bera sig að við að klippa í sundur bíl. Ljósm. tfk

Víða var haldið upp á 112 daginn

Víðsvegar um landið var haldið upp á 112 daginn sl. miðvikudag. Markmið hans var sem fyrr að minna á þetta mikilvæga neyðarnúmer ásamt því að þakka neyðarvörðum og öðrum viðbragðsaðilum fyrir þeirra ómetanlegu störf. Dagsetningin 11.2. er táknrænn og hjálpar landsmönnum að muna þetta lífsnauðsynlega númer. Þema 112 dagsins var að nú eru 30 ár frá stofnun Neyðarlínunnar. Neyðarverðir taka á degi hverjum á móti erindum sem berast 1-1-2 og vinna úr þeim. Þau veita stuðning og leiðbeiningar og sjá til þess að málin fari í réttan farveg. Til þess að samstarf innhringjanda og neyðarvarðar gangi sem farsællegast er gagnlegt að vera viðbúinn að svara eftirfarandi spurningum þegar hringt er í 1-1-2: Hvar er atburðurinn, hver ert þú, hvað gerðist og hvenær gerðist atburðurinn?