Fréttir

true

Flytja Jóhannesarpassíu Bachs í Eldborgarsalnum

Í tilefni 50 ára afmælis Sumartónleika í Skálholti flytur Kammerkórinn Schola Cantorum, Barokkbandið Brák og Finnish Baroque Orchestra Jóhannesarpassíu J.S. Bachs. Stjórnandi og guðspjallamaður er Benedikt Kristjánsson sem búsettur er á Akranesi. Aðrir flytjendur eru María Konráðsdóttir sópran, Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran, Hrólfur Sæmundsson sem syngur Pílatus og Tobias Berndt sem syngur Jesú. Sumartónleikar í Skálholti…Lesa meira

true

Gott silfur er gulli betra

Í gær lék lið 9. flokks karla hjá ÍA til úrslita í VÍS-bikarkeppni í körfuknattleik gegn Fjölni í Reykjavík. Leikurinn markaði tímamót í sögu félagsins, en 30 ár eru liðin frá því ÍA lék síðast til úrslita í bikarkeppni í körfuknattleik. Þá er þetta jafnframt í fyrsta skipti sem unglingalið félagsins nær svo langt í…Lesa meira

true

Frumvarp um breytingu á lögum um ársreikninga

Atvinnuvegaráðuneytið hefur lagt fram í Samráðsgátt frumvarpsdrög um breytingu á lögum um ársreikninga. „Frumvarpið er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar um einföldun regluverks og skilvirkt rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi. „Með frumvarpinu er reynt að tryggja að flokkun félaga samkvæmt ársreikningalögum endurspegli raunverulegt efnahagslegt umfang þeirra. Lögð er til rýmkun á stærðarmörkum þeirra félaga sem geta…Lesa meira

true

Grundarfjörður gerði góða ferð í Mosfellsbæ

Meistaraflokkur Grundarfjarðar í blaki kvenna heimsótti lið Aftureldingar B að Varmá í Mosfellsbæ í gær. Stelpurnar úr Grundarfirði byrjuðu leikinn af krafti og unnu fyrstu hrinuna nokkuð örugglega 13-25 og komust í forystu 0-1. Heimakonur í Aftureldingu mættu aðeins ákveðnari til leiks í annarri hrinu en það dugði þó ekki til þar sem gestirnir unnu…Lesa meira

true

Tónhylur þakkar Skagamönnum fyrir móttökurnar

„Fyrir hönd Tónhyls viljum við færa Skagamönnum þakkir fyrir frábærar móttökur síðasta sumar þegar við tókum upp bíómyndina Undir Ísnum. Það var mikið rætt innan framleiðsluteymisins hvað Skagamenn voru boðnir og búnir til að aðstoða okkur og styðja við ungt fólk í kvikmyndagerð. Okkar bestu þakkir fá Sundlaugin á Jaðarbökkum, Kallabakarí og Lemon Akranesi. Stuðningurinn…Lesa meira

true

Nú styttist í vígslu á íþróttamannvirkjum í Búðardal

Það var létt yfir mannskapnum sem blaðamaður Skessuhorns hitti í nýju íþróttahúsi og sundlaug í Búðardal síðdegis á föstudaginn. Iðnaðarmenn voru að störfum og leggja nú nótt við dag að ljúka framkvæmdum tímanlega fyrir vígslu hússins í lok þessa mánaðar. Það var 11. júní fyrir hálfu öðru ári, sama dag og Dalabyggð fagnaði 30 ára…Lesa meira

true

Enn skelfur jörð við Eldey

Jarðskjálftahrina sem hófst við Eldey út af Reykjanesskaganum um hádegisbil á laugardaginn heldur áfram. Hafa nú mælst rúmlega 300 skjálftar í hrinunni og stendur hún enn yfir þó ákafinn hafi aðeins minnkað frá því í gær. Stærsti skjálftinn hingað til mældist 3,4 að stærð kl 16:50 í gær sunnudag, en Veðurstofu hafa ekki borist tilkynningar…Lesa meira

true

Skarkalagata er nafn á nýjustu deild Klettaborgar

Eftir síðustu áramót var opnuð ný deild í leikskólanum Klettaborg í Borgarnesi, eins og komið hefur fram í frétt Skessuhorns. Liðnar vikur hafa börn og starfsmenn skólans unnið að því að finna nafn á nýju deildina. Allar deildir leikskólans bera nöfn staðarheita úr bókum Astridar Lindgren. Í leikskólanum er því deildin Sjónarhóll þar sem Lína…Lesa meira

true

Halldór og Unnur Ösp eru öflugt tvíeyki

Salka – ástin og dauðinn, einleikur Unnar Aspar Stefánsdóttur, var frumsýndur í Landnámssetrinu í Borgarnesi um helgina. Verkið er sett á fjalirnar í samstarfi við Þjóðleikhúsið og tilefnið er 20 ára starfsafmæli Landnámssetursins sem hóf starfsemi sína árið 2006. Verk Unnar byggir á fyrri hluta skáldsögu Halldórs Laxness um Sölku Völku; Þú vínviður hreini. Segja…Lesa meira

true

Glussaloki gaf sig í ekjubrú Baldurs

Eftir að flóabáturinn Baldur hélt í sína daglegu ferð yfir Breiðafjörðinn í dag varð óhapp á bryggjunni. Glussaloki við dælu í ekjubrú gaf sig með þeim afleiðingum að brúin féll og skekktist, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Engin slasaðist í þessu óhappi. Nú síðdegis eru starfsmenn frá Skipavík og BB & sonum að…Lesa meira