Íþróttir

true

Keppnistímabilið að hefjast í Lengjudeild kvenna

Lengjudeild meistaraflokks kvenna fer af stað laugardaginn 2. maí. Grótta tekur á móti Haukum á Vivaldivellinum, heimavelli Gróttu, en HK tekur á móti meistaraflokki ÍA í Kórnum í Kópavogi. Leikurinn hefst kl. 14:00. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með Skarphéðni Magnússyni þjálfara meistaraflokks kvenna hjá ÍA og ræddi við hann um leiktíðina sem nú fer í…Lesa meira

true

Fyrsti heimaleikur Víkings verður styrktarleikur fyrir Maríu

Víkingur Ólafsvík spilar sinn fyrsta leik í 2. deildinni á morgun, föstudaginn 1. maí klukkan 14 á Ólafsvíkurvelli. Mótherjarnir verða Hvíti riddarinn. Liðið kemur vel stemmt til leiks en um liðna helgi lék Víkingur til úrslita í Lengjubikar B deildar við Hauka, sem reyndar báru sigur úr býtum. Leikurinn á morgun verður jafnframt stuðningsleikur eins…Lesa meira

true

Skagamenn steinlágu fyrir Víkingi R

ÍA og Víkingur Reykjavík mættust á Víkingsvellinum í fjórðu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær. Aðstæður voru ekki upp á sitt besta í rigningu og suðaustan vindi. Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill og skiptust liðin á að sækja án þess að nokkuð markvert gerðist. Skagamenn voru þó nálægt því að skora eftir öflugt…Lesa meira

true

Stórleikur hjá ÍA í kvöld í Bestu deild karla

Það má búast við erfiðum leik hjá Skagamönnum þegar ÍA mætir Víkingi Reykjavík á Víkingsvellinum í 4. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 19:15 í kvöld. ÍA er í 8. sæti með tvö stig en Víkingur R situr í öðru sæti með sjö stig, tveimur stigum á eftir KR sem er á…Lesa meira

true

Unnu til verðlauna í garpasundi

Opna Íslandsmeistaramótið í garpasundi fór fram dagana 24.-25. apríl í Vatnaveröld Reykjanesbæ. Kári Geirlaugsson vann til sjö gullverðlauna og setti eitt Garpamet í flokki 75-79 ára í 100m fjórsundi. Hallbera Jóhannesdóttir vann til tvennra gullverðlauna og setti tvö Garpamet í flokki 70-74 ára í 50m skriðsundi og 100m bringusundi. „Frábær áragangur hjá þeim og við…Lesa meira

true

Sundfólk af Vesturlandi í keppnisferð í Danmörku

Þrettán sundmenn frá ÍA og Skallagrími tóku nýverið þátt á Triton Open sundmóti í Ballerup í Danmörku. Þessir keppendur voru á aldrinum 12–15 ára og fyrir flesta þeirra var þetta fyrsta keppnisferð á erlenda grund. Keppt var í 50 metra laug við góðar aðstæður og skipulag mótsins var til fyrirmyndar, að sögn Kjell Wormdal yfirþjálfara…Lesa meira

true

Haukar höfðu betur í úrslitum Lengjubikars B deildar

Víkingur Ólafsvík mætti Haukum í miklum rokleik í fótbolta í gær. Spilað var til úrslita í Lengjubikar B deildar. Leikmenn áttu í vandræðum með að halda boltanum sín á milli vegna mikils vinds og var því leikurinn síður en svo skemmtilegur á að horfa, en mikil barátta var samt sem áður og nokkur gul spjöld…Lesa meira

true

Akranesmeistaramótið í sundi

Akranesmeistaramótið fór fram í sundlauginni á Jaðarsbökkum á þriðjudaginn. 38 sundmenn tóku þátt, sem eru tíu fleiri en á síðasta ári. Allir keppendur stóðu sig vel og var mótið sömuleiðis vel heppnað og í blíðskapar veðri. Eftir mót var verðlaunaafhending og pizzaveisla í boði Galito. Akranesmeistar 2026 voru eftirtaldir : 11-13 ára stelpur: Rúna Björk…Lesa meira

true

Skagamenn gerðu orrahríð að marki KA manna

ÍA og KA áttust við í Akraneshöllinni miðvikudaginn 22. apríl síðast liðinn í leik í Bestu deild karla í fótbolta. Í fyrri hálfleik stjórnuðu Skagamenn algjörlega leiknum og gerðu oft harða hríð að marki KA manna en án árangurs. Strax á sjöttu og sjöundu mínútu sóttu Skagamenn hratt upp hægri kantinn, í fyrra skiptið small…Lesa meira

true

ÍA Meyjar í keilu spiluðu sig upp í fyrstu deild

ÍA Meyjur í keilu komust í umspil um að komast upp í 1. deild kvenna á móti fyrr í vikunni. Þær voru í 2. sæti í annarri deild og öttu kappi við bikarmeistarana ÍR-Píur úr 1. deild sem áttu á hættu að falla niður um deild. Í fyrri viðureigninni náðu ÍA Meyjur einungis í 3,5…Lesa meira