
Akranesmeistarar 2026: Rúna Björk, Sunna, Sigmar Orri, Eymar og Karen Anna. Ljósm. Ingibjörg Svava Magnúsardóttir
Akranesmeistaramótið í sundi
Akranesmeistaramótið fór fram í sundlauginni á Jaðarsbökkum á þriðjudaginn. 38 sundmenn tóku þátt, sem eru tíu fleiri en á síðasta ári. Allir keppendur stóðu sig vel og var mótið sömuleiðis vel heppnað og í blíðskapar veðri. Eftir mót var verðlaunaafhending og pizzaveisla í boði Galito.