Sigurreifar ÍA Meyjur: Jónína Björg Magnúsdóttir, Vilborg Lúðvíksdóttir, Steinunn Inga Guðmundsdóttir, Ágústa Kristín Jónsdóttir og Nína Rut Magnúsdóttir. Á myndina vantar vantar Jóhönnu Nínu Karlsdóttur sem einnig spilaði með liðinu.

ÍA Meyjar í keilu spiluðu sig upp í fyrstu deild

ÍA Meyjur í keilu komust í umspil um að komast upp í 1. deild kvenna á móti fyrr í vikunni. Þær voru í 2. sæti í annarri deild og öttu kappi við bikarmeistarana ÍR-Píur úr 1. deild sem áttu á hættu að falla niður um deild. Í fyrri viðureigninni náðu ÍA Meyjur einungis í 3,5 stig af fjórtán og þurftu því 11 stig í seinni viðureigninni til sigurs. Spilaðir eru þrír leikir hverju sinni þar sem fjögur stig eru í boði í hverjum leik ásamt tveimur stigum fyrir heildina. Í æsispennandi viðureign fóru leikar þannig að Meyjurnar kræktu í þrjú stig í fyrsta leik, þrjú stig í öðrum leik og tóku svo öll stigin í síðasta leiknum og náðu einnig heildarskorinu og tryggðu sér þar með sigurinn með 12 stigum eða alls 15,5 og munu því keppa í 1. deild kvenna í haust.