Skagamenn fagna. Ljósm. úr safni/ Jón Gautur Hannesson

Skagamenn gerðu orrahríð að marki KA manna

ÍA og KA áttust við í Akraneshöllinni miðvikudaginn 22. apríl síðast liðinn í leik í Bestu deild karla í fótbolta. Í fyrri hálfleik stjórnuðu Skagamenn algjörlega leiknum og gerðu oft harða hríð að marki KA manna en án árangurs. Strax á sjöttu og sjöundu mínútu sóttu Skagamenn hratt upp hægri kantinn, í fyrra skiptið small boltinn í neðanverðri slánni á marki KA en í síðara skiptið varði markvörður KA manna vel. Skagamenn stjórnuðu spilinu stærstan hluta leiks en KA menn áttu nokkrar skyndisóknir. Loks brast stíflan og Magnús Páll Ellertsson kom ÍA yfir á 32. mínútu með góðri afgreiðslu. Besta og eina alvöru færi KA manna kom rétt fyrir lok fyrri hálfleiks.  Skagamenn hefðu átt að vera búnir að skora 2-3 mörk ef þeir hefðu nýtt þau ógrynni færa sem þeir fengu.