Leikurinn var mikið klafs í talsverðum vindi. Ljósm. af

Haukar höfðu betur í úrslitum Lengjubikars B deildar

Víkingur Ólafsvík mætti Haukum í miklum rokleik í fótbolta í gær. Spilað var til úrslita í Lengjubikar B deildar. Leikmenn áttu í vandræðum með að halda boltanum sín á milli vegna mikils vinds og var því leikurinn síður en svo skemmtilegur á að horfa, en mikil barátta var samt sem áður og nokkur gul spjöld fóru á loft.