
Sundfólk af Vesturlandi í keppnisferð í Danmörku
Þrettán sundmenn frá ÍA og Skallagrími tóku nýverið þátt á Triton Open sundmóti í Ballerup í Danmörku. Þessir keppendur voru á aldrinum 12–15 ára og fyrir flesta þeirra var þetta fyrsta keppnisferð á erlenda grund. Keppt var í 50 metra laug við góðar aðstæður og skipulag mótsins var til fyrirmyndar, að sögn Kjell Wormdal yfirþjálfara hjá ÍA. Sagði hann að sundfólkið hafi ekki látið sitt eftir liggja, staðið sig vel í nýju umhverfi og náð fjölmörgum persónulegum bætingum.