Barátta um boltann í fyrri hálfleik. Ljósm. fotbolti.net/Hafliði Breiðfjörð

Skagamenn steinlágu fyrir Víkingi R

ÍA og Víkingur Reykjavík mættust á Víkingsvellinum í fjórðu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær. Aðstæður voru ekki upp á sitt besta í rigningu og suðaustan vindi. Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill og skiptust liðin á að sækja án þess að nokkuð markvert gerðist. Skagamenn voru þó nálægt því að skora eftir öflugt stangarskot eftir um stundarfjórðungs leik. Staðan í hálfleik var markalaus en Íslandsmeistararnir settu í annan gír í síðari hálfleik og skoruðu fjögur mörk.