Lið Víkings Ólafsvík. Ljósm. af

Fyrsti heimaleikur Víkings verður styrktarleikur fyrir Maríu

Víkingur Ólafsvík spilar sinn fyrsta leik í 2. deildinni á morgun, föstudaginn 1. maí klukkan 14 á Ólafsvíkurvelli. Mótherjarnir verða Hvíti riddarinn. Liðið kemur vel stemmt til leiks en um liðna helgi lék Víkingur til úrslita í Lengjubikar B deildar við Hauka, sem reyndar báru sigur úr býtum.

Leikurinn á morgun verður jafnframt stuðningsleikur eins og kemur fram á heimasíðu Víkings: „Elsku Ingvar, okkar allra besti fyrirliði, missti kærustu sína, Birtu Björk, í byrjun árs úr krabbameini. Á sama tíma og Birta Björk var að berjast sinni hetjulegu baráttu við krabbameinið var móðir hennar, María, einnig að kljást við krabbamein, sem hún þó sigraðist á. Því miður greindist María með bráðahvítblæði í mars síðastliðnum og langar okkur í stjórn ungmennafélagsins og meistaraflokknum því að tileinka þennan fyrsta heimaleik þeim mæðgum, heiðra minningu Birtu Bjarkar og styðja við Maríu í komandi baráttu. Allur ágóði af miðasölu, sjoppusölu og varningi rennur því beint til Maríu. Grillið verður heitt og við seljum hamborgara og pylsur. Við hvetjum alla til að mæta á völlinn, fyllum stúkuna af bláu og sýnum stuðning í verki!“

Því má við þetta bæta að þeir sem vilja leggja söfnuninni lið, en komast ekki á völlinn, er styrktarreikningur: 0194-26-5202 og kennitala: 520290-2579.