
Stórleikur hjá ÍA í kvöld í Bestu deild karla
Það má búast við erfiðum leik hjá Skagamönnum þegar ÍA mætir Víkingi Reykjavík á Víkingsvellinum í 4. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 19:15 í kvöld. ÍA er í 8. sæti með tvö stig en Víkingur R situr í öðru sæti með sjö stig, tveimur stigum á eftir KR sem er á toppnum. Þetta er mikilvægur leikur upp á sjálfstraustið og framhaldið að gera fyrir Skagamenn. Það verður örugglega hart tekist á og stuðningsmenn beggja liða munu eflaust fjölmenna á völlinn til að styðja sína menn. Munið bara eftir regnfötunum!