
Skarphéðinn Magnússon þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍA.
Keppnistímabilið að hefjast í Lengjudeild kvenna
Lengjudeild meistaraflokks kvenna fer af stað laugardaginn 2. maí. Grótta tekur á móti Haukum á Vivaldivellinum, heimavelli Gróttu, en HK tekur á móti meistaraflokki ÍA í Kórnum í Kópavogi. Leikurinn hefst kl. 14:00. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með Skarphéðni Magnússyni þjálfara meistaraflokks kvenna hjá ÍA og ræddi við hann um leiktíðina sem nú fer í hönd og stemninguna í hópnum. Skarphéðinn býr að langri reynslu í þjálfun þótt ungur sé. Hann hefur starfað samfleytt í þrettán ár hjá ÍA og komið að þjálfun allra flokka. Hann er búinn að sjá um þjálfun meistaraflokks kvenna síðastliðin þrjú ár og þekkir því leikmennina vel. Enda hefur hann þjálfað margar þessara stúlkna í yngri flokkunum.