Íþróttir

true

Grundarfjörður sigraði Fylki í síðasta heimaleik vetrarins

Kvennalið Grundarfjarðar í blaki tók á móti Fylki miðvikudaginn 11. mars. Þetta var síðasti heimaleikur liðsins og jafnframt síðasti leikurinn í deildinni. Það var því kátt á hjalla á pöllunum enda fjölmargir áhorfendur sem mættu og hvöttu liðið til dáða. Gestirnir í Fylki byrjuðu fyrstu hrinuna af krafti áður en heimakonur tóku við sér. Liðin…Lesa meira

true

Pálmi Þór tekur við meistaraflokki Skallagríms

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur sagt upp þjálfara karlaliðs félagsins, Pétri Má Sigurðssyni. Í tilkynningu kemur fram að samið hafi verið við Pálma Þór Sævarsson um að taka við þjálfun meistaraflokks karla út tímabilið. Honum til aðstoðar verður Orri Jónsson. „Pálma Þór þarf varla að kynna fyrir Borgnesingum en hann hefur komið að starfi deildarinnar um árabil,…Lesa meira

true

Blikar reyndust ofjarlar Skallagríms

Skallagrímur tók á móti Breiðabliki í leik í fyrstu deild í körfubolta karla í gær. Leikurinn reyndist afar kaflaskiptur, en í fyrsta leikhluta var eins og heimamenn væru ekki komnir í gang, töpuðu honum með fjórum stigum gegn 25. Meira jafnfræði var með liðunum það sem eftir lifði leiks, en þessi munur frá byrjun leiks…Lesa meira

true

Tvö mót búin í KB mótaröðinni

Annað mótið í KB mótaröðinni í hestaíþróttum var haldið í gær. Veðrið hélt áfram að stríða mótshöldurum en mótið átti að vera á laugardeginum en því þurfti að fresta um einn dag vegna slæms veðurs. Þátttaka var engu að síður góð á mótinu og var sérstaklega gaman að sjá hvað skráning var mikil í barnaflokki…Lesa meira

true

Leikur kattarins að músinni

Höttur tók á móti Snæfelli í fyrstu-deildarleik í körfubolta karla í gær. Hattarmenn sýndu að það er ekki tilviljun að þeir eru efstir í deildinni og höfðu yfirhöndina í öllum leikhlutum. Lokatölur urðu 132 gegn 73.   Hattarmenn deildu stigum býsna bróðurlega á milli sín, en Adam Eiður var stigahæstur með 25 stig, Ásmundur Múli…Lesa meira

true

Grundfirðingar gerðu góða ferð í Kópavoginn

Stelpurnar í blakliði Grundarfjarðar heimsóttu lið HK-U í Digranesi á föstudagskvöldið. Lið Grundarfjarðar sat í 4. sæti 1. deildar fyrir leikinn en HK U var í neðri hluta deildarinnar. Fyrsta hrinan var æsispennandi en liðin skiptust á að leiða framan af. Heimakonur í HK voru svo komnar í vænlega stöðu 24-22 og vantaði bara eitt…Lesa meira

true

Snæfellskonur áttu ekki roð við Aþenu

Snæfell tók í gær á móti Aþenu í leik í 1. deild kvenna í körfubolta. Gestirnir byrjuðu betur og höfðu talverða yfirburði eftir fyrstu tvo leikhlutana; tuttugu stiga munur og markatalan 61-41 í hálfleik. Síðari tvo leikhlutana voru Snæfells konur þó með yfirhöndina, en það dugði engan veginn til. Leikurinn fór því 83-98 fyrir Aþenu.…Lesa meira

true

Lokamínúturnar reyndust Skagamönnum erfiðar

ÍR tók á móti ÍA á föstudaginn í Skógarseli í leik í Bónusdeild karla í körfu. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur og höfðu heimamenn í ÍR yfirhöndina í fyrsta leikhluta, en Skagamenn í öðrum. Í hálfleik var staðan 50:45 fyrir ÍA. Þriðji leikhluti var einnig Skagamanna sem unnu hann með 16 stigum gegn 21. En svo…Lesa meira

true

Snæfell sigraði í Vesturlandsslagnum

Snæfell og Skallagrímur áttust í gær við í hreinum Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfunni. Fyrir leikinn var Skallagrímur á betri stað í stigatöflunni en heimavöllurinn var Snæfells og nýttu Hólmarar sér það. Eftir fyrsta leikhluta leiddu gestirnir úr Borgarnesi með 29 stigum gegn 24. Annar leikhluti var í járnum, en í síðustu tveimur…Lesa meira

true

Grundarfjörður tapaði naumlega fyrir toppliði KA U20

Blaklið Grundarfjarðar heimsótti topplið KA U20 á laugardasginn. Lið KA U20 er skipað yngri leikmönnum KA, eins og nafnið gefur til kynna, en þessar ungu stelpur hafa farið með himinskautum í 1. deildinni og hafa góða forystu á toppi deildarinnar. Lið Grundarfjarðar situr í fjórða sæti en þær höfðu tapað síðustu tveimur leikjum áður en…Lesa meira