
Grundfirðingar gerðu góða ferð í Kópavoginn
Stelpurnar í blakliði Grundarfjarðar heimsóttu lið HK-U í Digranesi á föstudagskvöldið. Lið Grundarfjarðar sat í 4. sæti 1. deildar fyrir leikinn en HK U var í neðri hluta deildarinnar. Fyrsta hrinan var æsispennandi en liðin skiptust á að leiða framan af. Heimakonur í HK voru svo komnar í vænlega stöðu 24-22 og vantaði bara eitt stig til að sigra hrinuna en þá skoruðu gestirnir fjögur síðustu stigin og unnu hrinuna 24-26 og náðu því forystu 0-1 í leiknum. Í annarri hrinu voru heimkonur í HK U örlítið ákveðnari og náðu að jafna metin 1-1 með 25-20 sigri í hrinunni. Gestirnir frá Grundarfirði hrukku í gang við þetta og sigruðu þriðju hrinuna nokkuð örugglega 15-25 og náðu aftur forystunni. Fjórða hrinan var svo æsispennandi og ætluðu bæði lið að selja sig dýrt. Hún endaði þó með 22-25 sigri gestanna sem tryggðu sér því þar með 1-3 sigur og hífðu sig upp í þriðja sæti í deildinni.