Lokamínúturnar reyndust Skagamönnum erfiðar

ÍR tók á móti ÍA á föstudaginn í Skógarseli í leik í Bónusdeild karla í körfu. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur og höfðu heimamenn í ÍR yfirhöndina í fyrsta leikhluta, en Skagamenn í öðrum. Í hálfleik var staðan 50:45 fyrir ÍA. Þriðji leikhluti var einnig Skagamanna sem unnu hann með 16 stigum gegn 21. En svo snérist dæmið við. ÍR-ingar skelltu í sókn, unnu leikhlutann með 25 stigum gegn 12 og leikinn þar með með 86 stigum gegn 83. Svekkjandi tap fyrir Skagamenn sem voru afar nálægt því að klára leikinn.

Lokamínúturnar reyndust Skagamönnum erfiðar - Skessuhorn