
Pálmi Þór. Ljósmynd úr safni Skallagríms
Pálmi Þór tekur við meistaraflokki Skallagríms
Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur sagt upp þjálfara karlaliðs félagsins, Pétri Má Sigurðssyni. Í tilkynningu kemur fram að samið hafi verið við Pálma Þór Sævarsson um að taka við þjálfun meistaraflokks karla út tímabilið. Honum til aðstoðar verður Orri Jónsson. „Pálma Þór þarf varla að kynna fyrir Borgnesingum en hann hefur komið að starfi deildarinnar um árabil, ýmist sem leikmaður, stjórnarmaður, þjálfari eða stuðningsmaður.“