Lið Grundarfjarðar eftir leik með áritaða treyju frá Önnu Maríu Reynisdóttur sem var að spila sinn síðasta heimaleik fyrir liðið. Ljósm. tfk

Grundarfjörður sigraði Fylki í síðasta heimaleik vetrarins

Kvennalið Grundarfjarðar í blaki tók á móti Fylki miðvikudaginn 11. mars. Þetta var síðasti heimaleikur liðsins og jafnframt síðasti leikurinn í deildinni. Það var því kátt á hjalla á pöllunum enda fjölmargir áhorfendur sem mættu og hvöttu liðið til dáða.