Grundarfjörður fagnar einu af fjölmörgu stigum sem skoruð voru þennan eftirmiðdag á Akureyri. Ljósm. tfk

Grundarfjörður tapaði naumlega fyrir toppliði KA U20

Blaklið Grundarfjarðar heimsótti topplið KA U20 á laugardasginn. Lið KA U20 er skipað yngri leikmönnum KA, eins og nafnið gefur til kynna, en þessar ungu stelpur hafa farið með himinskautum í 1. deildinni og hafa góða forystu á toppi deildarinnar. Lið Grundarfjarðar situr í fjórða sæti en þær höfðu tapað síðustu tveimur leikjum áður en kom að þessum leik á Akureyri. Þær töpuðu 3-1 fyrir HK B í Digranesi 13. febrúar og svo töpuðu þær í oddahrinu 2-3 á heimavelli fyrir sameinuðu liði Blakfélags Hafnarfjarðar og Þrótti Reykjavík.