
Verðlaunaafhending í unglingaflokki. Texti og myndir: iss
Tvö mót búin í KB mótaröðinni
Annað mótið í KB mótaröðinni í hestaíþróttum var haldið í gær. Veðrið hélt áfram að stríða mótshöldurum en mótið átti að vera á laugardeginum en því þurfti að fresta um einn dag vegna slæms veðurs. Þátttaka var engu að síður góð á mótinu og var sérstaklega gaman að sjá hvað skráning var mikil í barnaflokki og hvað krakkarnir voru í senn duglegir og vel ríðandi. Mótið er bæði einstaklings- og liðakeppni sem býr til skemmtilega stemningu með smá dass af keppnisskapi. Spennandi verður að sjá hvernig lokamótið fer en mjótt er á munum bæði í liða- og einstaklingskeppninni.