
Snæfellskonur áttu ekki roð við Aþenu
Snæfell tók í gær á móti Aþenu í leik í 1. deild kvenna í körfubolta. Gestirnir byrjuðu betur og höfðu talverða yfirburði eftir fyrstu tvo leikhlutana; tuttugu stiga munur og markatalan 61-41 í hálfleik. Síðari tvo leikhlutana voru Snæfells konur þó með yfirhöndina, en það dugði engan veginn til. Leikurinn fór því 83-98 fyrir Aþenu.