Leikur kattarins að músinni

Höttur tók á móti Snæfelli í fyrstu-deildarleik í körfubolta karla í gær. Hattarmenn sýndu að það er ekki tilviljun að þeir eru efstir í deildinni og höfðu yfirhöndina í öllum leikhlutum. Lokatölur urðu 132 gegn 73.