Blikar reyndust ofjarlar Skallagríms

Skallagrímur tók á móti Breiðabliki í leik í fyrstu deild í körfubolta karla í gær. Leikurinn reyndist afar kaflaskiptur, en í fyrsta leikhluta var eins og heimamenn væru ekki komnir í gang, töpuðu honum með fjórum stigum gegn 25. Meira jafnfræði var með liðunum það sem eftir lifði leiks, en þessi munur frá byrjun leiks hélst út leiktímann, en lokatölur urðu 70 - 93.