Fréttir

true

Sögufrægt hús til sölu í Borgarnesi

Gamla sparisjóðshúsið í Borgarnesi hefur verið auglýst til sölu. Húsið er ríflega hundrað ára, hannað af Guðjóni Samúelsssyni og byggt árið 1920. Það stendur á holti við Skúlagötu og var á sínum tíma byggt fyrir tvíhliða notkun. Á neðri hæðinni hafði Sparsjóður Mýrasýslu starfsemi en á efri hæðinni bjó þáverandi Sparisjóðsstjóri Magnús Ágúst Jónsson ásamt…Lesa meira

true

Íbúar á Vesturlandi eru nú 18.604

Á tveggja mánaða tímabili, frá 1. desember síðastliðnum til 1. febrúar, fjölgaði íbúum á Vesturlandi um 21, sem jafngildir 0,1%. Íbúum fjölgaði í sex sveitarfélögum, í einu stendur íbúafjöldi í stað og fækkun er í tveimur. Á Akranesi fjölgaði um 14 íbúa á tímabilinu, en þar eru nú 8.597 búsettir. Í Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit var…Lesa meira

true

Sameina stofnanir

Atvinnuvegaráðuneytið hefur lagt fram í Samráðsgátt frumvarpsdrög um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Einnig hafa verið lögð fram í gáttinni drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hafrannsóknastofnun. „Markmið með sameiningu þessara þriggja stofnana er að einfalda þjónustu við atvinnulíf, fækka samskiptaleiðum og skýra ferla með öflugri og skilvirkari stofnun sem…Lesa meira

true

Vinna hafin við stefnumótun íþróttahreyfingarinnar

Vinna er hafin við heildstæða stefnumótun fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi og hófst með formlegum hætti á fundi formanna sérsambanda og íþróttahéraða sem haldin var á Akranesi í nóvember síðastliðnum. „Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að leggja verkefninu lið og hafa hugmyndir eða tillögur varðandi nálgun eða upplegg í stefnumótunarvinnunni, til að senda okkur…Lesa meira

true

Ræða bakslag í mannréttindum á Jafnréttisdögum háskólanna

Bakslag í mannréttindum, samspil gervigreindar og kynjajafnréttis og kynfrelsis, inngilding skynsegin nema og nemenda af ólíkum uppruna í háskólum, veruleiki hinsegin nemenda og samband kynjajafnréttis og friðar er meðal þess sem verður til umfjöllunar á hinum árlegu Jafnréttisdögum sem fara fram 9.-12. febrúar í háskólum landsins. „Alls verða í boði rúmlega 30 viðburðir um allar…Lesa meira

true

Stóraukinn kvóti til hreindýraveiða

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið veiðiheimildir til hreindýraveiða, gjaldskrá veiðileyfa fyrir árið 2026 og skiptingu þeirra milli sveitarfélaga, að fengnum tillögum frá Náttúruverndarstofnun. Alls verður heimilt að veiða 936 hreindýr á veiðitímanum; 499 kýr og 437 tarfa. Um töluverða aukningu er að ræða miðað við árið í fyrra, en þá var veiðikvótinn 665 dýr.…Lesa meira

true

Sjötíu ár frá stofnun Vírnets

Í dag eru sjötíu ár liðin frá stofnun Vírnets hf, sem nú ber heitið Límtré Vírnet eftir sameiningu við Límtré á Flúðum árið 2005. Vírnet var stofnað í Borgarnesi 5. febrúar árið 1956 á grundvelli hugmynda um framleiðslu girðingarefnis. Þau áform urðu reyndar ekki að veruleika, en þess í stað hóf fyrirtækið að framleiða nagla…Lesa meira

true

Matvælasjóður styrkir þróun og nýsköpun

Matvælasjóður auglýsir í Skessuhorni vikunnar að opnað hafi verið fyrir umsóknir vegna sjöundu úthlutunar sjóðsins en hægt verður að sækja um úr sjóðnum til miðnættis 27. febrúar nk. „Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. Til úthlutunar úr sjóðnum…Lesa meira

true

Vilja að hagsmuna hlunnindabænda verði gætt

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar undir lok janúar voru rædd drög atvinnuvegaráðherra að frumvarpi til laga um lagareldi. Gerði sveitarfélagið umsögn þar sem frumvarpinu er mótmælt. Þar segir m.a. að um Borgarbyggð renni margar af bestu laxveiðiám landsins. „Veiðihlunnindi er undirstaða verðmætis fjölmargra jarða og nýting þeirra veitir fjölda fólks atvinnu í sveitarfélaginu. Jarðeigendur hafa varið…Lesa meira

true

Semja um rekstur PMTO miðstöðvar á landsvísu

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hafa undirritað samning um rekstur PMTO-miðstöðvar (Parent Management Training – Oregon), sem ætlað er að þjóna öllu landinu. „PMTO-foreldrafærni er gagnreynt meðferðarúrræði fyrir foreldra barna með samskipta- eða hegðunarerfiðleika sem hefur reynst afar vel hér á landi. Aðferðin hefur verið notuð hér á landi í…Lesa meira