Matvælasjóður styrkir þróun og nýsköpun

Matvælasjóður auglýsir í Skessuhorni vikunnar að opnað hafi verið fyrir umsóknir vegna sjöundu úthlutunar sjóðsins en hægt verður að sækja um úr sjóðnum til miðnættis 27. febrúar nk. „Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. Til úthlutunar úr sjóðnum í ár eru rúmar 479 milljónir króna. Matvælasjóður hefur skipt sköpum fyrir marga frumkvöðla og matvælaframleiðendur,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. „Nýsköpun í matvælageiranum og þróun í matvælavinnslu er afskaplega mikilvæg á okkar tímum, þar gegnir sjóðurinn lykilhlutverki.“

Matvælasjóður veitir styrki í fjórum flokkum. Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi, úr hugmynd yfir í verkefni. Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu. Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi, eru ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð. Loks styrkir Fjársjóður sókn á markaði, hjálpar fyrirtækjum að koma sínum verðmætum á framfæri.

„Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér flokka og handbók sjóðsins vel áður en farið er í að vinna umsókn. Einungis verður tekið við umsóknum í gegnum Afurð sem er stafrænt stjórnsýslukerfi matvælaráðuneytisins. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sjóðsins; matvaelasjodur.is“