
Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ heilsar upp á knattspyrnumenn. Ljósm. isi.is
Vinna hafin við stefnumótun íþróttahreyfingarinnar
Vinna er hafin við heildstæða stefnumótun fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi og hófst með formlegum hætti á fundi formanna sérsambanda og íþróttahéraða sem haldin var á Akranesi í nóvember síðastliðnum. „Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að leggja verkefninu lið og hafa hugmyndir eða tillögur varðandi nálgun eða upplegg í stefnumótunarvinnunni, til að senda okkur tölvupóst. Hægt er að senda hann á netföngin isi@isi.is og/eða umfi@umfi.is,“ segir í tilkynningu.