
Vírnet var fyrstu árin með starfsemi í Brákarey, en flutti árið 1963 í nýtt hús að Borgarbraut 74 í Borgarnesi, þar er starfsemin enn í dag. Ljósm. gj
Sjötíu ár frá stofnun Vírnets
Í dag eru sjötíu ár liðin frá stofnun Vírnets hf, sem nú ber heitið Límtré Vírnet eftir sameiningu við Límtré á Flúðum árið 2005. Vírnet var stofnað í Borgarnesi 5. febrúar árið 1956 á grundvelli hugmynda um framleiðslu girðingarefnis. Þau áform urðu reyndar ekki að veruleika, en þess í stað hóf fyrirtækið að framleiða nagla og var um langt skeið eini framleiðandi nagla á Íslandi. Árið 1977 bættist klæðingarstál við framleiðsluna og varð það ein helsta framleiðsluvara fyrirtækisins, undir heitinu Borgarnesstál.