
Íbúar á Vesturlandi eru nú 18.604
Á tveggja mánaða tímabili, frá 1. desember síðastliðnum til 1. febrúar, fjölgaði íbúum á Vesturlandi um 21, sem jafngildir 0,1%. Íbúum fjölgaði í sex sveitarfélögum, í einu stendur íbúafjöldi í stað og fækkun er í tveimur. Á Akranesi fjölgaði um 14 íbúa á tímabilinu, en þar eru nú 8.597 búsettir. Í Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit var lítilsháttar fækkun á tímabilinu, en innan við eitt prósentustig á hvorum stað.