Veiðistaður í Reykjadalsá neðan við Klett. Þar veiddist eldislax síðastliðið haust.

Vilja að hagsmuna hlunnindabænda verði gætt

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar undir lok janúar voru rædd drög atvinnuvegaráðherra að frumvarpi til laga um lagareldi. Gerði sveitarfélagið umsögn þar sem frumvarpinu er mótmælt. Þar segir m.a. að um Borgarbyggð renni margar af bestu laxveiðiám landsins. „Veiðihlunnindi er undirstaða verðmætis fjölmargra jarða og nýting þeirra veitir fjölda fólks atvinnu í sveitarfélaginu. Jarðeigendur hafa varið óhemju tíma og fjármunum til uppbyggingar og markaðssetningar veiðihlunninda. Þá hafa upprekstrarfélög og sveitarfélagið sjálft talsverðar tekjur af veiðirétti. Ímynd svæðisins og sjálfsmynd íbúa er nátengd lax- og silungsveiði.“