Sameina stofnanir

Atvinnuvegaráðuneytið hefur lagt fram í Samráðsgátt frumvarpsdrög um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Einnig hafa verið lögð fram í gáttinni drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hafrannsóknastofnun. „Markmið með sameiningu þessara þriggja stofnana er að einfalda þjónustu við atvinnulíf, fækka samskiptaleiðum og skýra ferla með öflugri og skilvirkari stofnun sem mun hafa starfsstöðvar víða um land.