
Húsið stendur á mótum Skúlagötu og Egilsgötu. Ljósm. gj
Sögufrægt hús til sölu í Borgarnesi
Gamla sparisjóðshúsið í Borgarnesi hefur verið auglýst til sölu. Húsið er ríflega hundrað ára, hannað af Guðjóni Samúelsssyni og byggt árið 1920. Það stendur á holti við Skúlagötu og var á sínum tíma byggt fyrir tvíhliða notkun. Á neðri hæðinni hafði Sparsjóður Mýrasýslu starfsemi en á efri hæðinni bjó þáverandi Sparisjóðsstjóri Magnús Ágúst Jónsson ásamt konu sinni Guðrúnu Jónsdóttur og þremur börnum. Upprunaleg stærð hússins var um 130 fm, um 65 fm hvor hæð, en árið 2020 var reist við það falleg viðbygging samkvæmt teikningum Einars Ingimarssonar arkítekts og stækkaði hún efri hæð hússins allnokkuð. Ásett verð er 115 milljónir króna og er það Nes fasteignasala sem veitir nánari upplýsingar.