
Ræða bakslag í mannréttindum á Jafnréttisdögum háskólanna
Bakslag í mannréttindum, samspil gervigreindar og kynjajafnréttis og kynfrelsis, inngilding skynsegin nema og nemenda af ólíkum uppruna í háskólum, veruleiki hinsegin nemenda og samband kynjajafnréttis og friðar er meðal þess sem verður til umfjöllunar á hinum árlegu Jafnréttisdögum sem fara fram 9.-12. febrúar í háskólum landsins. „Alls verða í boði rúmlega 30 viðburðir um allar hliðar jafnréttismála eða því sem næst, bæði fyrirlestrar, umræðufundir, gjörningar og list- og leiksýningar. Dagskráin er ýmist á íslensku eða ensku og mikil áhersla er á gott aðgengi að viðburðum, hvort sem þeir fara fram í streymi eða á staðnum,“ segir í tilkynningu.