Ráðherra og borgarstjóri undirrita samning um PMTO-miðstöð. Ljósm. Stjórnarráðið

Semja um rekstur PMTO miðstöðvar á landsvísu

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hafa undirritað samning um rekstur PMTO-miðstöðvar (Parent Management Training – Oregon), sem ætlað er að þjóna öllu landinu. „PMTO-foreldrafærni er gagnreynt meðferðarúrræði fyrir foreldra barna með samskipta- eða hegðunarerfiðleika sem hefur reynst afar vel hér á landi. Aðferðin hefur verið notuð hér á landi í 25 ár með góðum árangri. Í dag bjóða tíu sveitarfélag víðs vegar um landið foreldrum uppá PMTO-fræðslu. Árlega fá um 700 foreldrar þjónustu, auk þess að margir skólar njóta góðs af skólaútgáfu aðferðarinnar,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að rannsóknir sýni að foreldrar sem hafa fengið PMTO-þjónustu eru mjög ánægðir, þeir styrkjast í uppeldishlutverki sínu og finna jákvæðar breytingar sem geta skipt sköpum fyrir framtíð barnsins og fjölskyldunnar.