Fréttir

true

Allt undir í leikjunum í dag og á morgun

Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir í dag Sviss í þriðja og næstsíðasta leik í milliriðli 2 á EM í Svíþjóð. Hefst leikurinn klukkan 14:30. Á sama tíma á morgun mætir liðið svo Slóveníu. Vinni Ísland þessa tvo síðustu leiki í milliriðli fer það í undanúrslit mótsins sem hefst á föstudaginn. Ísland er sem stendur í…Lesa meira

true

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta

Fiskistofa hefur auglýst á vef sínum eftir umsóknum um byggðakvóta sem innviðaráðherra hefur úthlutað til Grundarfjarðar, Ólafsvíkur og Stykkishólms. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns var úthlutað 15 tonnum af byggðakvóta til Ólafsvíkur, 100 tonnum til Grundarfjarðar og 50 tonnum til Stykkishólms. Umsækjendur um byggðakvótann þurfa að uppfylla ýmis skilyrði til þess að…Lesa meira

true

Blaklið Grundarfjarðar spreytti sig gegn þeim bestu

Meistaraflokkur kvenna í blaki tók á móti toppliði efstu deildar í blaki í bikarkeppni BLÍ á laugardaginn. HK er langefst í Unbrokendeild kvenna og mætti 1. deildar liði UMFG í Grundarfirði. Stelpurnar í Grundarfirði eru í þriðja sæti í fyrstu deild og því var við ramman reip að draga. Gestirnir í HK byrjuðu af krafti…Lesa meira

true

Nýjar loftmyndir af þéttbýli komnar í kortasjá

Nýjar loftmyndir voru teknar á Vesturlandi síðastliðið sumar. Þær hafa nú verið birtar á kortasjám sveitarfélaganna sem hægt er að nálgast frá heimasíðum þeirra. Að þessu sinni voru nýjar loftmyndir teknar af Akranesi, Borgarnesi, Grundartanga og Melahverfi. Í kortasjánni er einnig hægt að finna upplýsingar um ýmsa þjónustu og afþreyingu eins og sundlaugar, örnefnaskrá og…Lesa meira

true

Vilja formlegar viðræður um þjóðarleikvang í golfi

Allir fulltrúar í skipulags- og umhverfisráði Akraneskaupstaðar samþykktu á síðasta fundi sínum áskoranir til Akraneskaupstaðar um að kanna möguleika á þjóðarleikvangi í golfi á Akranesi. Þar verði leitað eftir samningi við Golfsamband Íslands og Golfklúbbinn Leyni. Samþykktu bæði meiri- og minnihlutafulltrúar í ráðinu ályktanir þess efnis. Fulltrúar meirihlutans segjast hlynntir því að hafnar verði formlegar…Lesa meira

true

Dalabyggð veitir styrki til menningarmála

Menningarmálanefnd Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum á dögunum að veita sjö styrki úr Menningarmálaverkefnasjóði vegna ársins 2026. Samkvæmt reglum sjóðsins skal úthlutað úr sjóðnum fyrir 1. febrúar ár hvert. Alls bárust að þessu sinni átta umsóknir en til úthlutunar voru 1.500.000 krónur. Eins og áður sagði samþykkti nefndin að veita sjö styrki að þessu sinni.…Lesa meira

true

Einn íbúi á Vesturlandi eldri en hundrað ára

Í dag eru 41 íbúi á Íslandi yfir eitt hundrað ára gamall. Af þeim eiga tveir þeirra maka á lífi. Þetta kemur fram í tölum frá Þjóðskrá. Elsti núlifandi íbúi landsins er kona sem fædd er árið 1920 og er því 105 ára. Hún er búsett á höfuðborgarsvæðinu. Þar búa líka flestir þeirra sem nú…Lesa meira

true

Sturla er íþróttamaður Snæfells 2025

Héraðssambandið Snæfell hefur útnefnt Sturlu Böðvarsson Íþróttamann Snæfells árið 2025. Þrátt fyrir ungan aldur er Sturla máttarstólpi meistaraflokks karla í körfubolta og hefur leikið á alls oddi að undanförnu. Auk þess að spila með heimaliði sínu er Sturla í landsliðshópi U-18 í körfu, ásamt Öddu Sigríði Ásmundsdóttur. Valdís Helga Alexandersdóttir er svo í U-16 landsliðshópnum.…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn með góðan sigur á Hamri

Lið Skallagríms og Hamars í Hveragerði mættust í 1. deildinni í körfu karla í Borgarnesi á föstudagskvöld. Hamarsmenn hafa átt erfitt uppdráttar í deildinni í vetur og hafa setið við botn deildarinnar en liðsmenn Skallagríms hafa verið að þokast upp deildina. Sá stöðumunur endurspeglaðist nokkuð greinilega í leiknum. Strax í upphafi náðu heimamenn frumkvæðinu og…Lesa meira

true

Helgi Guðjónsson er íþróttamanneskja Borgarfjarðar 2025 – myndasyrpa

Kjöri Íþróttamanneskju Borgarfjarðar 2025 var lýst við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti í Borgarnesi í gær. Þar afhenti forsvarsfólk UMSB jafnframt ýmsar viðurkenningar fyrir góðan árangur á liðnu ári. Íþróttamanneskja Borgarfjarðar 2025 er Helgi Guðjónsson knattspyrnumaður úr UMFR. Helgi átti án efa sitt besta ár þar sem hann var einn besti leikmaður fyrnasterks liðs Víkings Reykjavíkur…Lesa meira