Skallagrímsmenn með góðan sigur á Hamri

Lið Skallagríms og Hamars í Hveragerði mættust í 1. deildinni í körfu karla í Borgarnesi á föstudagskvöld. Hamarsmenn hafa átt erfitt uppdráttar í deildinni í vetur og hafa setið við botn deildarinnar en liðsmenn Skallagríms hafa verið að þokast upp deildina.