Fréttir

true

Rarik ræðst í viðamiklar framkvæmdir í Borgarbyggð

Rarik ohf. hefur ákveðið að ráðast í viðamiklar framkvæmdir í Borgarbyggð á næsta ári. Verkefnin eru hluti af nýrri kerfisáætlun fyrirtækisins á svæðinu og eru meðal annars hugsuð til þess að anna rafmagnsálagi framtíðar. Þetta kemur fram í kynningu frá fyrirtækinu. Af verkefnum sem verður ráðist í má nefna að lagðir verða jarðstrengir frá Vatnshömrum…Lesa meira

true

Harmar rýr viðbrögð ráðuneytis og þingmanna vegna fjölda flóttamanna

Byggðarráð Borgarbyggðar vinnur nú að erindi til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þar sem það mun freista þess að sjóðurinn veiti stuðning vegna kostnaðar sem Borgarbyggð hefur axlað vegna fjölda flóttafólks sem búið hefur undanfarin ár á Bifröst. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns á undanförnum mánuðum hefur hópur flóttafólks búið á Bifröst talsvert á þriðja…Lesa meira

true

Samgönguáætlun mjög rýr að mati Byggðarráðs Borgarbyggðar

Byggðarráð Borgarbyggðar tók til umfjöllunar á dögunum frumvarpsdrög innviðaráðherra að Samgönguáætlun 2026-2040. Í ályktun byggðarráðsins, sem samþykkt var samhljóða, segir að áætlunin feli í sér litlar breytingar vegna nýframkvæmda á Vesturlandi og í Borgarbyggð. Hlutur þeirra verði áfram mjög rýr. Þá segir ráðið það valda vonbrigðum að svo virðist sem að vegakerfið í Borgarbyggð muni…Lesa meira

true

Björgunarfélag Akraness kynnir leiðir til fjármögnunar nýs björgunarskips

Eins og fram kom í frétt Skessuhorns á dögunum stefnir Björgunarfélag Akraness að því að festa kaup á næsta ári á björgunarskipinu Gísla Jóns frá Ísafirði en nýtt skip, Guðmundur í Tungu, bættist í flotann á dögunum og leysti Gísla Jóns af hólmi. Í frétt á vef Björgunarfélags Akraness er sagt frá þessum fyrirhuguðu kaupum.…Lesa meira

true

Sextán tilnefnd til kjörs Íþróttamanneskju Akraness

Íþróttabandalag Akraness hefur birt lista með nöfnun 16 einstaklinga sem tilnefndir eru til kjörs á Íþróttamanneskju Akraness 2025. Kjörið fer fram á þrettándanum 6. janúar og verður í beinni útsendingu á ÍATV. Fljótlega opnar kosning fyrir íbúa inn í íbúagáttinni. Eftirfarandi eru tilnefnd og nefnd hér í stafrófsröð: Aníta Hauksdóttir – Vélhjólaíþróttafélag AkranesAníta tók þátt…Lesa meira

true

Styrkjum úthlutað til einkarekinna fjölmiðla

Stjórnarráðið hefur birt niðurstöðu úthlutunar styrkja til einkarekinna fjölmiðla 2025. Alls bárust 30 umsóknir um rekstrarstuðning innan umsóknarfrests þar sem samtals var sótt um rétt rúman einn milljarð króna. Til úthlutunar voru 550 milljónir að frádregnum kostnaði vegna umsýslu, auglýsinga, þóknunar fyrir störf úthlutunarnefndar o.fl. sem var um 1,09% af heildarfjárhæð eða 5.979.027 kr. Til…Lesa meira

true

Fimmtíu nemendur brautskráðir frá FVA

Á föstudaginn voru 50 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Í tilkynningu frá skólanum segir að stór hluti útskriftarnema hafi lokuð dreifnámi í húsasmíði eða sautján talsins. Samtals hafi 28 lokið námi í húsasmíði þar af þrjár konur. Tveir nemendur luku námi bæði í húsasmíði og viðbótarnámi til stúdentsprófs, þrír nemendur ljúka meistaranámi, einn…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin töpuðu bæði leikjum sínum í fyrstu deildinni

Elleftu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik lauk á föstudagskvöldið þegar Snæfellingar héldu í Hveragerði þar sem þeir mættu liði Hamars og Skallagrímur fékk lið Hauka í heimsókn. Fyrsti fjórðungur leiksins í Hveragerði endurspeglaði gengi liðanna fram að þessu í deildinni. Snæfellingar höfðu heldur frumkvæðið og leiddu 21-25. Heimamenn sóttu í sig veðrið og í…Lesa meira

true

Hvalir fylgja breyttri göngu loðnunnar

Á undanförnum þrjátíu árum hafa orðið verulegar breytingar á vistkerfi hafsvæðisins milli Íslands og Austur-Grænlands, þar sem lykiltegundir eins og loðna hafa færst norður á við. Einnig hefur dreifing sjávarspendýra breyst. Þessar breytingar leiddu til þess að vísindamenn Hafrannsóknarstofnunar og grænlensku náttúrfræðistofnunarinnar lögðust í rannsóknir um tengsl hvala og loðnu við Austur-Grænland að hausti. Niðurstöður…Lesa meira

true

Gistinóttum fækkar á Vesturlandi og Vestfjörðum annan mánuðinn í röð

Gistinóttum á hótelum fækkaði um 6,6% í nóvember samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Alls voru gistinæturnar rúmlega 365 þúsund á landinu öllu en til samanburðar voru þær tæplega 391 þúsund á sama tíma á síðasta ári. Á Vesturlandi og Vestfjörðum fækkaði gistinóttum um 7,9% á milli ára. Þær voru 14.753 í ár en 16.011 á sama…Lesa meira