Samgönguáætlun mjög rýr að mati Byggðarráðs Borgarbyggðar

Byggðarráð Borgarbyggðar tók til umfjöllunar á dögunum frumvarpsdrög innviðaráðherra að Samgönguáætlun 2026-2040. Í ályktun byggðarráðsins, sem samþykkt var samhljóða, segir að áætlunin feli í sér litlar breytingar vegna nýframkvæmda á Vesturlandi og í Borgarbyggð. Hlutur þeirra verði áfram mjög rýr. Þá segir ráðið það valda vonbrigðum að svo virðist sem að vegakerfið í Borgarbyggð muni að litlu leyti njóta góðs af hækkun framlaga til viðhalds og tengivega. Það er að mati ráðsins óásættanlegt.