Fréttir

true

Við slit Fiskifélagsins var Slysavarnaskóli sjómanna styrktur

Við lok ársþings Sjómannasambands Íslands síðastliðinn föstudag færði Sjómannasambandið, Félag skipstjórnarmanna og Félag vélstjóra og málmtæknimanna Slysavarnaskóla sjómanna 25 milljónir króna að gjöf til kaupa á búnaði fyrir skólann. Gjöfin er hluti félaganna í Fiskifélagi Íslands, sem var formlega slitið í júní á þessu ári og var upphæðin að stærstum hluta komin til vegna sölu…Lesa meira

true

ASÍ telur frumvarp um atvinnuleysistryggingar gerræðislegt

Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra birti fyrir nokkru í samráðgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir. Meðal þeirra breytinga sem lagðar eru til í frumvarpinu er að stytta um tólf mánuði hámkarkslengd þess tímabils sem atvinnuleysistryggingar eru greiddar. Nú er það tímabil 30 mánuðir en verður, ef…Lesa meira

true

Borgarbyggð og Festir vinna saman í Brákarey

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur falið Stefáni Brodda Guðjónssyni sveitarstjóra að fullvinna drög að áframhaldandi samstarfi sveitarfélagsins við Festir ehf. í Reykjavík um vinnu við nýtt deiliskipulag í Brákarey og undirbúning uppbyggingar á grundvelli þess. Það var á árinu 2024 sem samstarfið hófst á grundvelli rammaskipulags sem unnið var af Festi í samstarfi við sveitarfélagið. Á fundi…Lesa meira

true

Gísli Eyjólfsson til liðs við ÍA

Gísli Eyjólfsson hefur samið við Knattspyrnufélag ÍA um að spila með félaginu næstu þrjú árin. Sögusagnir hafa verið á kreiki síðustu daga um þessi félagaskipti en nú liggja þau fyrir. Gísli hefur undanfarið verið á samningi hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Halmstad og var laus allra mála og kemur því á frjálsri sölu til ÍA. Gísli á…Lesa meira

true

KR tók ÍA í bakaríið í Vesturbænum

Fimmta umferð Bónusdeildarinnar í körfuknattleik hófst í gærkvöldi. Liðsmenn ÍA fóru fullir sjálfstrausts vestur í bæ í Reykjavík þar sem þeir mættu liði KR á Meistaravöllum. Það var í raun einungis í fyrsta leikhluta sem jafnræði var með liðunum. Í lok hans hans var tveggja stiga munur á liðunum 24-22. Eftir það hafði lið KR…Lesa meira

true

Mokaði tröppurnar um leið og hann bar út Skessuhornið

Það var þakklátur áskrifandi Skessuhorns sem hringdi í ritstjórann í gær. Sæunn Jónsdóttir, sem býr ásamt Birni manni sínum í efri hæð hússins við Bröttugötu 4b í Borgarnesi, segist sjaldan á ævinni hafa upplifað jafn mikla hjálpsemi og elskulegheit og hjá unga manninum sem ber út Skessuhorn til hennar á hverjum miðvikudegi. Fyrr í vikunni…Lesa meira

true

Hellnafellsvegur fari af vegaskrá

Vegagerðin hefur tilkynnt Grundarfjarðarbæ að til standi að fella niður veghald á Hellnafellsvegi í Grundarfirði. Vegurinn er í flokki svokallaðra héraðsvega og í tilkynningu Vegagerðarinnar kemur fram að slíkir vegir liggi að býlum, starfrækslu atvinnufyrirtækja, kirkjustöðum, opinberum skólum og öðrum opinberum stofnunum utan þéttbýlis. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er vegurinn lokaður með hliði eða skilti við…Lesa meira

true

Eitt stykki þorp til sölu

Áhugaverð fasteignaauglýsing birtist í Morgunblaðinu í dag frá fasteignasölunni Gimli í Reykjavík. Gimli bauð eins og fram hefur komið í frétt Skessuhorns lægsta verð í sölulaun fasteigna á Bifröst, en skólahaldi þar hefur verið hætt. Kiðá ehf., dótturfélag Háskólans á Bifröst, er skráð fyrir flestum fasteignum en auk þess eru þar fasteignir í einkaeigu meðal…Lesa meira

true

Gistinóttum fjölgaði í september

Gistinóttum fjölgaði á hótelum á Vesturlandi og Vestfjörðum um 6,8% í september. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands. Alls voru gistinætur á landinu öllu 544 þúsund í september og hafði fjölgað um 6% frá árinu 2024. Um fjölgun var að ræða í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum. Mest varð fjölgunin á Suðurlandi þar…Lesa meira

true

Mannréttindasáttmálar gera ekki kröfu um jöfnun atkvæðavægis

Líkt og kom fram í frétt Skessuhorns fyrr í vikunni hefur Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sett á fót starfshóp sem falið er að undirbúa breytingar á kosningalögum til að auka jafnræði í atkvæðavægi og þingsætadreifingu. Nefndi ráðherrann að með því sé stigið gott skref í átt að auknu jafnræði gagnvart mikilvægum borgaralegum réttindum sem kosningarétturinn…Lesa meira