
Katla Bjarnadóttir hjá Útgerðinni sækir um að fá að nýta Íþróttahúsið á Vesturgötu fyrir dansleiki um hátíðirnar.
Sækir um að halda jóla- og áramótadansleiki
Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar síðastliðinn fimmtudag var tekin fyrir umsókn frá Kötlu Bjarnadóttur í Útgerðinni bar við Stillholt um að halda tvo dansleiki um hátíðirnar í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Annars vegar er sótt um að halda Jólaball frá klukkan 22 að kvöldi annars í jólum og til kl. 04:30. Hins vegar er sótt um að halda áramótadansleik frá klukkan 00:30 á nýjársnótt og til klukkan 04:30. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins til næsta fundar sem fram fer fimmtudaginn 4. desember.