
Ingunn Ýr Angantýsdóttir hefur verið ráðin þjónustustjóri í Snæfellsjökulsþjóðgarði. Megin hlutverk þjónustustjóra er umsjón með rekstri þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi og gestastofu á Malarrifi, ábyrgð á þjónustu við gesti, viðburðastjórnun og gerð og miðlun fræðslu- og upplýsingaefnis. Ingunn er með BA í þjóðfræði og stundar nám í menningarstjórnun við Háskólanum á Bifröst.Lesa meira








