
Góðgerðarfélagskonur ásamt Oddnýju Evu, Rósu Marínósdóttur og Hildigunni Þórsdóttur yfirlækni heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi. Texti og myndir: hig
Stór góðgerðardagur í Borgarnesi í gær
Það var hátíðisdagur á Borgarbraut 65 í Borgarnesi í gær en þá var saman kominn stór hópur fulltrúa þriggja góðgerðarfélaga í Borgarfirði og Borgarnesi. Afhentu félögin heilsugæslustöð HVE í Borgarnesi og hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð gjafir. Þetta var Krabbameinsfélag Borgarfjarðar, Kvenfélagið 19. júní og Lionsklúbburinn Agla.