
Nýjasti Baldur við bryggju í Stykkishólmi. Ljósm. sá
Rekstur Baldurs í útboðsferli
Vegagerðin hefur boðið út rekstur Breiðafjarðarferjunnar Baldurs fyrir árin 2025-2028. Um er að ræða tvær ferjuleiðir með fólk, bíla og vörur, þ.e. frá Stykkishólmi til Brjánslækjar og til baka, en hins vegar leiðina Stykkshólmur, Flatey, Brjánslækur, Flatey og Stykkkishólmur. Samkvæmt útboðsgögnum er miðað við átta ferðir í viku milli Stykkishólms og Brjánslækjar og þar af minnst þrisvar sinnum i viku með viðkomu í Flatey. Þetta á við um tímabilið 1. september – 31. maí. Vegagerðin styrkir ekki ferðir yfir sumarmánuðina. Skilyrt er að bjóðandi skal nota ferjuna m/s Baldur sem er í eigu Vegagerðarinnar. Samningstíminn verður þrjú ár frá 9. maí 2025 til og með 30. apríl 2028, með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum um eitt ár í senn.