Ráðherra vill færa vöruflutninga af landi á sjó

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur falið Vegagerðinni að greina möguleika og móta aðgerðir til að efla vöruflutninga á sjó meðfram ströndum landsins í stað flutninga á þjóðvegum landsins. „Langstærstur hluti vöruflutninga hér á landi fer fram með bifreiðum um þjóðvegi. Álag á vegi hefur aukist hratt á undanliðnum árum, þ.m.t. umferð þungra bifreiða, með tilheyrandi fjárfestingum í viðhaldi vega. Vöruflutningar hafa einnig umtalsvert kolefnisspor og orkuskipti komin skemmra á veg í stærri biðreiðum,“ segir í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu.

Ráðherra vill færa vöruflutninga af landi á sjó - Skessuhorn