Fulltrúar sex stofnana og félaga mættu á fund umhverfis- og samgöngunefndar. Ljósm. bj

Fjallað um öryggi í jarðgöngum á fundi samgöngunefndar

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis átti í gær fund með þeim aðilum sem fara með öryggismál og viðbúnað í jarðgöngum. Voru þeir boðaðir í kjölfar atburðar þegar hópferðabíll varð alelda skömmu eftir að hafa komið út úr Vestfjarðagöngunum. Fyrir samgöngunefndina mættu fulltrúar frá Vegagerðinni, Samgöngustofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Landsambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna og Félagi slökkvistjóra. Að sögn Bjarna Jónssonar formanns nefndarinnar var farið yfir stöðu mála og aðgerðir sem ráðast verður í til að tryggja betur öryggi vegfarenda og viðbúnað til að koma í veg fyrir eða bregðast við slysum og hættuástandi. „Það er ljóst að verulegs átaks er þörf og innviðaskuldin er orðin of mikil,“ segir Bjarni í samtali við Skessuhorn.

Fjallað um öryggi í jarðgöngum á fundi samgöngunefndar - Skessuhorn