
Miðasala hafin á Heima-Skaga hátíðina
Heima-Skagi er tónlistarhátíð sem haldin er í tengslum við menningarhátíð Skagamanna, Vökudaga, sem standa frá 24. október til 3. nóvember í ár. Á hátíðinni sem fer fram laugardaginn 26. október koma fram tólf listamenn/hljómsveitir sem spila tvisvar sinnum flestir í tólf mismunandi húsum. Eitt kvöld, 24 tónleikar í það heila í tólf húsum.
Það er spilað í heimahúsum Skagafólks; Til að mynda á Skólabraut 20 (Guðni og Lilja), Vesturgötu 45 (Kristján og Margrét) og Grundartúni 8 (Elfa og Pálmi) og á fleiri stöðum. Einnig til dæmis í Bíóhöllinni, í Akraneskirkju, í gamla Iðnskólanum, gamla leikfimishúsinu við Vesturgötu og í Blikksmiðju Guðmundar sem er einn af styrktaraðilum hátíðarinnar, já og á rakarastofu Hinna á Vesturgötu.
Þetta er einstök hátíð þar sem nándin við listafólkið er mjög mikil. Fyrsta Heima-Skaga hátíðin var haldin 2019 með sex atriðum og það hefur alltaf selst upp. Fjallabræður opna hátíðina á lágstemmdum nótum í kirkjunni klukkan 19.30 þar sem hátíðin verður formlega sett með stuttri athöfn. Síðan byrja tónleikar hér og þar frá klukkan 20 og standa til 23.
Lokatónleikar Heima-Skaga í ár verða í Bíóhöllinni frá 23.15-?? þar sem Fjallabræður ætla að hafa hátt. Þau sem koma fram á Heima-Skaga hátíðinni í ár eru: KK, Ylja, Jónfrí, Elín Hall, G.G. Blús, Fjallabræður, Jón Ólafsson, Spacestation, Bíó-tríó Andreu Gylfa, Sigurður Guðmundsson, Anna Halldórs og Davíð Þór og Hector Meriles Trio (s-Ameríka).
Miðasala er hafin á Heima-Skaga á tix.is og kostar miðinn 7.900 krónur.
{
"name": "core/embed",
"attributes": {
"caption": "",
"allowResponsive": true,
"responsive": false,
"previewable": true,
"url": "https://www.facebook.com/watch/?mibextid=WC7FNe&v=371300839387884&rdid=bt5sT8vnBivH1c8H"
},
"saveContent": "<figure class=\"wp-block-embed\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\nhttps://www.facebook.com/watch/?mibextid=WC7FNe&v=371300839387884&rdid=bt5sT8vnBivH1c8H\n</div></figure>",
"innerBlocks": []
}