Fréttir

true

Úr sarpi: „Lít mjög stoltur til baka á ferilinn minn“

Viðtal við knattspyrnumanninn Arnór Smárason sem birtist í Skessuhorni árið 2022 Knattspyrnumaðurinn Arnór Smárason skrifaði undir tveggja ára samning við Knattspyrnufélag ÍA í byrjun nóvember á þessu ári. Arnór hefur leikið sem atvinnumaður erlendis frá byrjun árs 2004 og skrifaði undir sinn fyrsta atvinnusamning hjá hollenska liðinu SC Heerenveen í september sama ár, þá 16…Lesa meira

true

Úr sarpi: Svona er ég

Viðtal við Vilhjálm Hjörleifsson sem birtist í Skessuhorni árið 2020 Íslenski fáninn blaktir við snoturt hús á Varmalandi í Stafholtstungum þegar blaðamaður Skessuhorns rennir þar í hlað í byrjun desember. Þarna er annað heimili þeirra Vilhjálms Hjörleifssonar og Elizabeth Goodall Alexandersdóttur, en þau eiga einnig íbúð í Reykjavík. Athygli vekur hvað umhverfið er fallegt og…Lesa meira

true

Aldarfjórðungur frá því Símenntun Vesturlands var stofnuð

Síðdegis í gær var haldið upp á að 25 ár eru liðin frá því Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi, nú Símenntun, var stofnuð. Það var 19. febrúar árið 1999 sem 34 stofnaðilar; sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir á svæðinu, ákváðu að hrynda verkefninu úr vör. Af þessu tilefni var blásið til veislu í nýjum húsakynnum Símenntunar við Smiðjuvelli…Lesa meira

true

Nemendur í Heiðarskóla fóru í haustferð

Um miðja síðustu viku fóru nemendur á miðstigi Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit í sína árlegu haustferð. Hópurinn lagði hress af stað um morguninn og farið var í leiki og fleira skemmtilegt við Skátaskálann í Skorradal, einhverjir fundu ber og grillaðar voru pylsur. Að lokum var farið í sund í Borgarnesi. Sama dag var haustferð unglingastigs og…Lesa meira

true

Grenndarstöðvum komið fyrir í Snæfellsbæ

Nú er lokið við að setja niður grenndarstöðvar í þéttbýliskjörnunum Ólafsvík, Hellissandi og Rifi í Snæfellsbæ. Á þeim er hægt að skila málmum og gleri til endurvinnslu. Einnig er búið að setja niður tvær grenndarstöðvar á Arnarstapa, við Músaslóð og Jaðar. Settar verða tvær grenndarstöðvar til viðbótar á Arnarstapa og jafnframt verður einni grenndarstöð komið…Lesa meira

true

Nýjar gangbrautir og göngustígar við Innnesveg

Akraneskaupstaður er nú í samstarfi við verktaka að ljúka við gerð gangbrauta og göngustíga milli Grundaskóla og Íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum. Umferðarljósin eru farin en í stað þeirra eru fjórar gangbrautir sem unnið er að færa upp á palla til að auka umferðaröryggið. Fram kemur á vef Grundaskóla að í dag er 30 km hámarkshraði á…Lesa meira

true

Naumt tap Skallagríms gegn Árborg

Árborg og Skallagrímur áttust við í lokaumferð 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var viðureignin á Jáverk-vellinum á Selfossi. Það var ansi mikið undir í þessum leik hjá báðum liðum. Skallagrímur gat með sigri tryggt sæti sitt í deildinni á meðan lið Árborgar er í harðri toppbaráttu við Ými og um sæti í…Lesa meira

true

Prís ódýrast

Stærstu fjórar matvörukeðjur landsins lækkuðu verð milli ágústbyrjunar og ágústloka og er lækkunin rakin til þess að lágvöruverðsverslunin Prís var opnuð í Kópavogi í liðnum mánuði. Í tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ kemur fram að Bónus lækkaði verð á 19% þeirra vara sem til skoðunar voru, Krónan og Nettó á 9% og Hagkaup á 3%. Verð…Lesa meira

true

Míla lýkur lagningu ljósleiðara í Grundarfirði

Framkvæmdum Mílu við lagningu ljósleiðara í Grundarfirði fer nú senn að ljúka. Um 100 tengingar til heimila og fyrirtækja hafa bæst við í ár og eru nú tilbúnar til notkunar. Íbúar geta haft samband við sitt fjarskiptafyrirtæki til að panta þjónustu um ljósleiðara Mílu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Mílu og Grundarfjarðarbæ. Með framkvæmdum…Lesa meira

true

Aukning í sölu eldisafurða fyrstu sjö mánuði ársins

Útflutningsverðmæti eldisafurða er komið í 27,3 milljarða króna á fyrstu sjö mánuðum ársins og hefur aldrei verið meira á tilgreindu tímabili. Í krónum talið er aukningin rúmlega 18% frá sama tímabili í fyrra. Vegna lítilsháttar styrkingar á gengi krónunnar á tímabilinu er aukningin í erlendri mynt örlítið meiri, eða rúmlega 19%. Þetta má lesa úr…Lesa meira